Kvika banki hf.: Kvika gefur út AT1 skuldabréf í sænskum krónum í fyrsta sinn


Kvika hefur í dag lokið við útgáfu skuldabréfa sem teljast til viðbótar eiginfjárþáttar 1.Útgáfan er liður í að viðhalda hagkvæmri skipan eiginfjár eins og kynnt var í árslokauppgjöri bankans í febrúar síðastliðnum. Er þetta í fyrsta sinn sem Kvika gefur út AT1 skuldabréf og markar útgáfan tímamót hjá bankanum og styður við áframhaldandi vöxt hans og arðsemi. Umframeftirspurn var eftir útgáfunni sem seld var til fjárfesta í Skandinavíu. 

Heildarfjárhæð útgáfunnar er 300 milljónir sænskra króna og eru skuldabréfin án lokagjalddaga en með innköllunarheimild af hálfu útgefanda eftir 5 ár. Skuldabréfin bera 425 punkta álag ofan á 3 mánaða millibankavexti í sænskum krónum (STIBOR). Skuldabréfin fela í sér tímabundna niðurfærslu (e. temporary writedown) lækki hlutfall almenns eiginfjár þáttar 1 (e. CET 1) niður fyrir 5,125%.   

Skuldabréfin verða skráð í kauphöll Nasdaq í Stokkhólmi. 

Ráðgjafar við útgáfu skuldabréfanna eru Nordea bank Abp og Swedbank AB. 

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is 


GlobeNewswire

Recommended Reading