Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk í dag útboði á nýjum flokki óverðtryggðra skuldabréfa, EIK 29 1.
Í útboðinu bárust tilboð að heildarnafnvirði 3.100 m.kr. verði á bilinu 98,579-99,093. Samþykkt voru tilboð að nafnvirði 3.060 m.kr. á verðinu 98,579.
Niðurstaða útboðs:
| Flokkur | EIK 29 1 |
| Greiðslu- og uppgjörsdagur | 28.4.2026 |
| Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.) | 3.060 |
| Samþykkt (verð) | 98,579 |
| Fjöldi innsendra tilboða | 10 |
| Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.) | 3.100 |
| Fjöldi samþykktra tilboða | 10 |
| Vegið meðaltal innsendra tilboða (verð) | 98,7244 |
| Boðhlutfall | 1,013 |
Áætlaður uppgjörsdagur er 28. apríl nk. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland fyrir lok árs.
Markaðsviðskipti Arion banka voru umsjónaraðili útboðsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980