Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung 2026 þriðjudaginn 28. apríl næstkomandi.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir.
Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Hjörtur Þór Steindórsson fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt á fjárfestavef Símans og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi á vef Símans. Hægt er að senda spurningar á fjarfestatengsl@siminn.is og þeim verður svarað í lok fundar.