Íþaka fasteignir ehf: Fundarboð vegna kynningarfundar skuldabréfaeigenda í flokkum ITHAKA


Íþaka fasteignir ehf., kt. 450613-2580, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík, útgefandi í skuldabréfaflokkum ITHAKA 070627, ITHAKA 291128, ITHAKA 051233 og ITHAKA 300834, boðar til kynningarfundar fyrir skuldabréfaeigendur, sem haldinn verður miðvikudaginn 29. apríl 2026 klukkan 15:30 í húsakynnum Deloitte ehf., að Dalvegi 30, Kópavogi (5. hæð).

Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál til kynningar:

  1. Áður kynnt áform um samruna útgefanda, staðan.

Farið verður yfir samruna útgefanda, Íþöku fasteigna ehf., við félög innan samstæðu móðurfélags útgefanda, Íþöku ehf., sem kynntir voru á fundi skuldabréfaeigenda 25. mars 2024, og samþykktir á fundi skuldabréfaeigenda 8. apríl 2024.

  1. Framtíðaráform útgefanda um uppbyggingu og áframhaldandi vöxt til 2030 - fleiri samrunar og skuldabréfaflokkar í farvatninu.

Framtíðaráform útgefanda um uppbyggingu og áframhaldandi vöxt til 2030 tengist eftirtöldum fasteignum:

  • Verslunar- og þjónustubygging á Dalvegi 30A, Kópavogi, afhending í júní-sept 2026.
  • Atvinnuhúsnæði að Álhellu 9 Hafnarfirði, afhending í ágúst 2026.
  • Ríflega 300 herbergja Moxy hótel í Borgartúni 1, Reykjavík, afhending í apríl-júní 2028.
  • Verslunar- og þjónustubygging á Lambhagavegi 11, Reykjavík, á framkvæmdarstigi.
  • Samruni Höfðatorgs ehf. við útgefanda, áform 2027-2029. Tengist fasteigninni Katrínartúni 6, Reykjavík – Húsi íslenskra fjármála (Skatturinn, Fjársýsla ríkisins).

Heildar eignasafn útgefanda nam um 86.000 fm í árslok 2025, áformaður vöxtur í um 126.000 fm í árslok 2030.

Athygli er vakin á því að hér er eingöngu um að ræða kynningarfund útgefanda. Engar tillögur verða á dagskrá fundarins og engar ákvarðanir teknar.

Skuldabréfaeigendur eru eindregið hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér framtíðaráform félagsins. Fundurinn er opinn skuldabréfaeigendum og öðrum markaðsaðilum meðan húsrými leyfir.

Léttar veitingar í boði.

20. apríl 2026

Pétur Freyr Pétursson, framkvæmdastjóri


GlobeNewswire

Recommended Reading