REITIR: NIB fjármagnar heilsutengd þróunarverkefni Reita


Reitir hf. hafa undirritað samkomulag um tæplega 4,4 ma. kr. verðtryggða lánsfjármögnun frá Norræna fjárfestingarbankanum NIB, sem styður við tvö uppbyggingarverkefni undir heilsutengda starfsemi.  

Fjármögnunin frá NIB nær til 10 ára og mun styðja við uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili við Nauthólsveg og læknamiðstöð við Ármúla 7-9 en heildarkostnaður verkefnanna er um 8,8 ma. kr. Verkefnin eru til þess fallin að mæta áskorunum í heilbrigðiskerfinu og falla vel að stefnu Reita um að þróa og byggja upp fasteignir sem þörf er á í samfélaginu. 

Hjúkrunarheimili við Nauthólsveg

Við Nauthólsveg 50 stendur yfir umbreyting á skrifstofuhúsnæði í hjúkrunarheimili sem mun rúma 87 íbúa og er áætlað að það taki til starfa fyrri hluta árs 2027. Í maí 2025 skrifuðu Reitir undir leigusamning við Ríkiseignir til 20 ára um útleigu á húsnæðinu.

Heilbrigðisþjónusta og skurðaðgerðir í Ármúla 

Uppbygging á nýrri læknamiðstöð í Ármúla 7 og 9 munu veita skjótari aðgang að aðgerðum sem ekki eru bráðar og sérfræðitímum, og hjálpa þannig til við að létta álagi á opinbera heilbrigðiskerfið. 

Nánari upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson gudni@reitir.is og Einar Þorsteinsson einar@reitir.is



GlobeNewswire

Recommended Reading