Í framhaldi af samþykki aðalfundar Eikar fasteignafélags hf. (Eik) á kaupréttaráætlun um kauprétt stjórnenda og lykilstarfsmanna hefur stjórn veitt tilteknum aðilum kauprétti á 36.600.000 hlutum í félaginu, sem samsvarar um 1,08% af heildarhlutafé félagsins miðað við útistandandi hlutafé á þeim tíma sem kaupréttaráætlunin var samþykkt. Samningar um kaupréttina hafa verið gerðir.
Markmið kaupréttaráætlunar er að tengja hagsmuni kaupréttarhafa annars vegar, við afkomu og langtímamarkmið félagsins, og hins vegar hagsmuni hluthafa þess um ávöxtun eignar sinnar.
Kaupverð hvers hlutar er 14,36 kr., sem byggir á vegnu meðalverði í viðskiptum með hluti félagsins 20 heila viðskiptadaga fyrir gerð hvers kaupréttarsamnings, verðtryggt miðað við dagvísitölu neysluverðs til verðtryggingar frá dagsetningu kaupréttarsamnings og fram að nýtingardegi.
Nýting kauprétta kaupréttarhafa að þremur árum liðnum er eingöngu heimil ef gengi hluta félagsins hefur hækkað um ákveðið lágmark frá gerð kaupréttarsamnings, að teknu tilliti til arðgreiðslna eða annarrar úthlutunar til hluthafa.
Aðrir skilmálar kaupréttarsamninganna eru í samræmi við fyrrnefnda kaupréttaráætlun.
Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir voru forstjóra og stjórnendum má finna í viðhengi.
Viðhengi
- Tilkynning viðskipta - HMH- 16.04.2026
- Tilkynning viðskipta - LHG - 16.04.2026
- Tilkynning viðskipta - GM - 16.04.2026
- Tilkynning viðskipta - FÁ - 16.04.2026
- Tilkynning viðskipta - ÁHS - 16.04.2026