Tilkynning frá Eimskip


Héraðssaksóknari hefur í dag fellt niður rannsókn á framkvæmdastjóra Rekstrarsviðs Eimskips vegna sölu tveggja skipa sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara árið 2020. Réttarstöðu hans sem sakbornings í málinu og málinu gagnvart honum er þar með lokið.

Eimskip fékk í dag upplýsingar um að héraðssaksóknari hafi gefið út ákærur á hendur félögunum Eimskipafélag Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. vegna sama máls og þess krafist að félögin verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Eimskip telur sig hafa fylgt í einu og öllu lögum og reglum í söluferli skipanna sem voru seld til áframhaldandi rekstrar en ekki til endurvinnslu.

Eimskip fagnar því að óvissu gagnvart starfsfólki hafi nú verið eytt og mun taka til varna fyrir dómstólum.

Tengiliður:

Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs. Sími: 825 7379. Netfang: harpa@eimskip.com.


GlobeNewswire

Recommended Reading