Síminn hf. efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026. Boðnir verða til sölu víxlar í flokknum SIMINN261022, undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins.
SIMINN261022 er nýr 6M víxill með lokagjalddaga þann 22. október 2026. Nafnverðseining víxlanna er 20 m.kr.
Útboðið verður með „hollenskri“ aðferð þar sem öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötum vöxtum. Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka öllum tilboðum að hluta.
Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir, þó eigi síðar en fyrir opnun markaða fimmtudaginn 16. apríl 2026.
Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudaginn 22. apríl 2026. Sótt verður um töku víxlana til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Kauphöll mun tilkynna um fyrsta dag töku til viðskipta með eins dags fyrirvara.
Íslandsbanki hf. hefur umsjón með sölu og kynningu á útboðinu. Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um tilboðsfjárhæð og flata vexti skal skilað til Íslandsbanka hf. fyrir kl 16:00, miðvikudaginn 15. apríl á netfangið vbm@islandsbanki.is.
Nánari upplýsinga veita:
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, netfang: vbm@islandsbanki.is.
Hjörtur Þór Steindórsson, fjármálastjóri Símans hf., netfang: hjortur.steindorsson@siminn.is.
Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindan flokk skuldaskjals verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.siminn.is/fjarfestar/skraningar-og-grunnlysing.