Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2025 var lagður fyrir fund bæjarráðs í dag, fimmtudaginn 9. apríl 2026. Rekstrarniðurstaða A og B hluta Mosfellsbæjar er jákvæð um 514 milljónir.
„Þessi niðurstaða endurspeglar traustan og ábyrgan rekstur, þrátt fyrir verðbólgu og hátt vaxtastig. Við höfum náð þessum árangri á sama tíma og við höfum ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir og farið í metnaðarfull umbótaverkefni eins og Börnin okkar“ segir Þóra Margrét Hjaltested, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Traustur rekstur
Rekstrartekjur bæjarins námu 24 milljörðum króna. Rekstrargjöld fyrir afskriftir voru 21,3 milljarðar króna, þar af nam launakostnaður 12,3 milljörðum eða 58% útgjalda.
Eigið fé sveitarfélagsins var 9,8 milljarðar í árslok og eiginfjárhlutfall 25,4%. Veltufé frá rekstri nam 1.537 milljónum eða 6,4% af tekjum. Skuldaviðmið var 98,2% sem er vel innan ramma um fjármál sveitarfélaga.
Fræðslu- og uppeldismál eru umfangsmesti málaflokkurinn og til hans var varið 10,1 milljörðum eða 54,5% skatttekna. Til félagsþjónustu var veitt 4,2 milljörðum eða 22,8% skatttekna og eru þar með talin framlög vegna málefna fatlaðs fólks. Loks eru íþrótta- og tómstundarmál þriðja umfangsmesta verkefni bæjarins og til þeirra var ráðstafað um 1,8 milljörðum eða 9,9% skatttekna.
Metár í framkvæmdum
Stærsta framkvæmd ársins var nýbygging leikskólans Sumarhúsa sem staðsettur er í Helgafellslandi og var tekinn í notkun seinni hluta árs. Þá voru miklar framkvæmdir við Íþróttamiðstöðina að Varmá þar sem gervigras og keppnislýsing aðalvallar var endurnýjuð, auk þess sem framkvæmdir við frjálsíþróttaaðstöðu hófust. Jafnframt var nýtt íþróttahús við Helgafellskóla tekið í notkun. Viðhaldsframkvæmdum í skólabyggingum var framhaldið ásamt gatna- og veituframkvæmdum.
„Árið 2025 einkenndist af umfangsmiklum framkvæmdum en fjárfest var fyrir 4,3 milljörðum og er stærsta fjárfestingaár Mosfellsbæjar til þessa. Við opnuðum m.a. glæsilegan 150 barna leikskóla, Sumarhús í Helgafellshverfi, sem var stór framkvæmd auk þess að styrkja leikskólaþjónustu Mosfellsbæjar þar sem áfram er hægt að bjóða börnum allt frá 12 mánaða aldri leikskólapláss” segir Þóra.
Umbætur í þjónustu
Á árinu var markvisst unnið að því að útvíkka og efla þjónustu við íbúa. Verkefnið Börnin okkar var innleitt en það fól í sér 100 milljóna fjárveitingu í forvarnarverkefni fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Alls voru innleiddar 27 aðgerðir sem miðuðu að því að styrkja þjónustu við börn og fjölskyldur, auka aðgengi og stytta boðleiðir. Sálfræðiþjónusta og önnur ráðgjafaþjónusta var aukin til foreldra og barna auk þess sem markvisst var unnið að því að efla félagsfærni og vellíðan barna og ungmenna.
Þjónusta við eldri borgara var jafnframt styrkt með innleiðingu samþættrar heimahjúkrunar og heimaþjónustu undir formerkinu Gott að eldast, fjölgun dagdvalarrýma og öflugu félagsstarfi í Brúarlandi, sem hefur stuðlað að aukinni þátttöku og bættri líðan.
Áfram var unnið með markvissum hætti að stafrænni þróun þjónustu og styrkingu upplýsingatækni innviða. Þar sem áhersla er á notendavæna þjónustu, öryggi, aukna sjálfvirkni og bætta nýtingu gagna.
„Við leggjum ríka áherslu á að veita góða þjónustu og halda áfram að byggja upp öflugt samfélag á traustum grunni enda er þjónustan hjartað í Mosó.“ segir Þóra Margrét Hjaltested.
Ársreikningurinn verður tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn þann 15. apríl 2026.
Nánari upplýsingar veitir Þóra M. Hjaltested bæjarstjóri í síma 525-6700
Viðhengi