Eik fasteignafélag hf.: Boðun aðalfundar árið 2026


Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi.

Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá aðalfundar félagsins auk tillagna stjórnar, skýrslu tilnefningarnefndar og annarra skjala sem varða aðalfundinn. Vakin er athygli á upplýsingum í fundarboði um fyrirkomulag rafrænnar forskráningar sem og á tillögum um breytingar á starfskjarastefnu félagsins, samþykktum félagsins ásamt kaupréttaráætlun og kaupréttarkerfi stjórnenda. Jafnframt er vakin sérstök athygli á meðfylgjandi bréfi forstjóra til hluthafa.

Ársskýrsla, sem inniheldur ársreikning 2025, hefur þegar verið birt og sjálfbærniskýrsla er aðgengileg á heimasíðu félagsins ásamt öðrum fundargögnum.

Viðhengi



Attachments

Aðalfundarboð 2026 Dagskrá aðalfundar 2026 AGM agenda (informal English translation) Tillögur stjórnar fyrir aðalfund 2026 Proposals (informal English translation) Starfskjarastefna með auðmerktum breytingartillögum Samþykktir fyrir Eik fasteignafélag hf. - með auðmerktum breytingartillögum Bréf forstjóra til hluthafa Kaupréttaráætlun um kauprétt starfsmanna á hlutum í Eik á grundvelli 10. gr. tsl Kaupréttarkerfi um kauprétt stjórnenda og lykilstarfsmanna á hlutum í Eik Skýrsla tilnefningarnefndar Eikar fasteignafélags hf. 2026 Umboð vegna aðalfundar 2026 (eyðublað) Framboð til stjórnarsetu í Eik fasteignafélagi (eyðublað)
GlobeNewswire

Recommended Reading