Landsbankinn hf.: S&P breytir horfum lánshæfismats sértryggðra skuldabréfa úr stöðugum í jákvæðar


Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag breytingu á horfum lánshæfismats sértryggðra skuldabréfa Landsbankans úr stöðugum í jákvæðar. Lánshæfismat sértryggðra skuldabréfa útgefin af bankanum er því A+ með jákvæðum horfum.

Tilkynningin kemur í kjölfar tilkynningar S&P um breyttar horfur á lánshæfi íslenska ríkisins til langs tíma sem birt var 6. mars 2026, þar sem horfum var breytt úr stöðugum í jákvæðar.

Nánari upplýsingar eru í tilkynningu S&P sem aðgengileg er á vef bankans: https://www.landsbankinn.is/bankinn/fjarfestatengsl/lanshaefismat



GlobeNewswire

Recommended Reading