Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Endanleg dagskrá og tillögur


Aðalfundur Nova klúbbsins hf. verður haldinn rafrænt og á skrifstofu félagsins að Lágmúla 9, Reykjavík, fimmtudaginn 26. mars 2026, kl. 16:00.

Meðfylgjandi er endanleg dagskrá fundarins og tillögur stjórnar, sem er óbreytt frá fundarboðun.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru hvattir til að skrá sig á https://www.lumiconnect.com/events/novaagm2026 fyrir kl. 16:00 þann 25. mars, eða degi fyrir fundardag. Skráningu á fundinn þarf að fylgja afrit af skilríkjum og umboð, ef við á.

Framboðsfrestur vegna framboða til setu í stjórn og tilnefningarnefnd félagsins rennur út kl. 16:00, nk. laugardag, 21. mars.

Fundargögn og allar nánari upplýsingar um fundinn má finna á vefsíðu félagsins, www.nova.is/fjarfestar.

Viðhengi



Attachments

Nova klúbburinn hf. - Endanleg dagskrá og tillögur - Aðalfundur 2026
GlobeNewswire

Recommended Reading