Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 14. janúar kl. 15:00. Boðinn verður til sölu óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 29.
Áætlaður uppgjörsdagur er 21. janúar 2026.
Sértryggðu skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma Landsbankans fyrir sértryggð skuldabréf. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.