Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 44


Í 44. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 11.790.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
27.10.202513:34600.0004,962.976.000
28.10.202509:34600.0004,942.964.000
29.10.202515:14600.0004,952.970.000
31.10.202509:31600.0004,802.880.000
Samtals2.400.000 11.790.000 

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.

Nova Klúbburinn átti 63.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 65.400.000 hluti, eða um 1,84% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 319.047.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is


Recommended Reading