Landsbankinn hf.: Græn skuldabréfaútgáfa í evrum


Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum til fimm ára að fjárhæð 300 milljónir evra. Skuldabréfin bera 3,50% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 135 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.

 

Heildareftirspurn nam 1,3 milljörðum evra frá um eitt hundrað fjárfestum frá Bretlandi, Norðurlöndunum, meginlandi Evrópu og Asíu.

 

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans með vísan í sjálfbæra fjármálaumgjörð bankans sem vottuð er af Sustainalytics. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 24. júní 2025.

 

Umsjónaraðilar voru Deutsche Bank, Goldman Sachs, Morgan Stanley og UBS.


GlobeNewswire

Recommended Reading