Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 13. maí kl. 15:00. Boðnir verða til sölu óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 29 og verðtryggði flokkurinn LBANK CBI 31.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur óverðtryggða flokksins LBANK CB 25 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfanna er fyrirframákveðið og er 98,520.
Áætlaður uppgjörsdagur er 20. maí 2025.
Sértryggðu skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma Landsbankans fyrir sértryggð skuldabréf. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.