Alvotech (NASDAQ: ALVO) tekur þátt í árlegri heilbrigðisráðstefnu BofA Securities í Las Vegas, Nevada sem haldin verður í dagana 13.–15. maí nk. Fulltrúar félagsins funda með fjárfestum og sitja fyrir svörum hjá greinanda bankans á heilbrigðissviði, miðvikudaginn 14. maí nk. kl. 15:40–16:10.
Hægt verður að hlýða á hljóðupptöku af samtalinu við greinanda BofA Securities í beinu streymi. Þá verður upptaka aðgengileg á vefsíðu félagsins í 90 daga eftir að ráðstefnunni lýkur. Upplýsingar um hvernig tengjast má streyminu eða hlýða á upptökuna er að finna á slóðinni: https://investors.alvotech.com/events/event-details/bofa-securities-healthcare-conference-2025
Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum. Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja-Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja--Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norðu- Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).
Meiri upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech, fjárfestasíðu, og almennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgið okkur á samfélagsmiðlum: LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube
Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com
