Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 29


Í 29. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.610.000 eigin hluti að kaupverði 13.681.550 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
15/07/2024 11:02:57 837.000 3.77 3.155.490
16/07/2024 10:32:41 635.000 3.77 2.393.950
17/07/2024 09:36:05 958.000 3.78 3.621.240
18/07/2024 11:47:23 853.000 3.82 3.258.460
19/07/2024 11:30:55 327.000 3.83 1.252.410
Samtals   3.610.000   13.681.550

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.

Nova Klúbburinn átti 31.071.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 34.681.000 hluti, eða um 0,94% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 133.681.550 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is


Recommended Reading