Kvika – ÍSH hs. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. á árinu 2014. Meðfylgjandi er árshlutareikningur 2022 fyrir fagfjárfestasjóðinn ÍSH.
- Tap sjóðsins á fyrri árshelmingi 2022 nam 432 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
- Hrein eign sjóðsins var neikvæð um 2.339 þús. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningur sjóðsins gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu hans 30.06.2022 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.
Viðhengi