Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 9 keypti Sjóvá 1.517.221 eigin hluti að kaupverði 53.253.735 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
1.3.202210:54:01755.00035,4026.727.000
2.3.202212:10:144.75135,00166.285
2.3.202212:10:142.47035,0086.450
4.3.202209:40:4943.90034,801.527.720
4.3.202209:43:05573.51534,8019.958.322
4.3.202210:04:10137.58534,804.787.958
Samtals 1.517.221 53.253.735
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 25. febrúar 2022.

Sjóvá átti 53.191.794 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 54.709.015 eigin hluti eða sem nemur 4,32% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 1.517.221 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,12% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 53.253.735 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 16.527.124 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 5,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is


GlobeNewswire

Recommended Reading