Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 14. september kl. 15:00. Boðinn verður til sölu einn óverðtryggður flokkur, LBANK CB 25.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur óverðtryggða flokksins LBANK CB 21 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfa í flokki LBANK CB 21 er fyrirframákveðið og er 100,721.
Áætlaður uppgjörsdagur er 21. september 2021.
Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.