Veðskuldabréfasjóður ÍV hs. er sérhæfður sjóður skv. lögum nr. 45/2020. Sjóðurinn er í rekstri ÍV sjóða hf. sem er starfsleyfisskyldur rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. sömu lögum. Sjóðurinn og rekstrarfélag hans lúta eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Sjóðurinn er útgefandi skuldabréfaflokksins VIV 14 1 sem skráður er á hjá Nasdaq OMX.
Hagnaður varð á rekstri sjóðsins á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2021 að fjárhæð 12,9 millj. kr. samanborið við 30,4m.kr yfir sama tímabil árið 2020. Hrein eign sjóðsins nam 1.266 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Viðhengi