Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum AL260148 og AL231124
KPMG er eftirlitsaðili skuldabréfaflokkanna AL260148 og AL231124. Eftirlitsaðili hefur það hlutverk að kanna og staðfesta sjálfstæða útreikninga útgefanda á fjárhagslegum og sérstökum skilyrðum skuldabréfaflokkanna.
KPMG hefur nú framkvæmt könnun á útreikningi sérstakra skilyrða skuldabréfaflokkanna.
Niðurstaða könnunar KPMG er í samræmi við útreikninga útgefanda að skuldabréfaflokkarnir AL260148 og AL231124 standast öll fjárhagsleg og sérstök skilyrði miðað við dagsetninguna 30.6.2019.
Niðurstaða könnunarinnar má sjá hér í viðhengi.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848-5290 eða sigurdur@al.is
Viðhengi