Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) keypti í síðustu viku engin eigin bréf í tengslum við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd þann 3. desember 2018, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann sama dag.
VÍS hefur nú keypt samtals 16.100.000 hluti á grundvelli framangreindrar áætlunar, sem nemur 46% af hámarki heimildar samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 165.565.500.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni skyldu að hámarki keyptir 22.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna aldrei verða meiri en kr. 250.000.000. Heimildin gilti til 31. desember 2018 og verða því ekki fleiri bréf keypt á grundvelli áætlunarinnar.
VÍS á nú samtals 2,18% af heildarhlutafé félagsins sem er alls kr. 1.952.642.307 að nafnverði, en fyrir átti félagið 26.500.000 hluti.