Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) keypti í síðustu viku alls 4.600.000 eigin hluti fyrir kr. 47.610.000 eins og hér segir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu VÍS eftir viðskipti |
| 4.12.2018 | 09:36 | 1.150.000 | 10,4 | 11.960.000 | 27.650.000 |
| 5.12.2018 | 09:32 | 1.150.000 | 10,3 | 11.845.000 | 28.800.000 |
| 6.12.2018 | 09:35 | 1.150.000 | 10,3 | 11.845.000 | 29.950.000 |
| 7.12.2018 | 12:52 | 1.150.000 | 10,4 | 11.960.000 | 31.100.000 |
| Samtals | 4.600.000 | 47.610.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem samþykkt var í stjórn félagsins þann 19. nóvember og var hrint í framkvæmd þann 3. desember 2018, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann sama dag.
VÍS hefur nú keypt samtals 4.600.000 hluti, sem samsvarar 20,44% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 47.610.000 kr. VÍS á nú samtals 1,59% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.952.642.307, en fyrir átti félagið 26.500.000 hluti.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 22.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en kr. 250.000.000. Heimildin gildir til 31. desember 2018. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.
Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105.