Fagfjárfestasjóðurinn ÍSH – Árshlutauppgjör júní 2018


Fagfjárfestasjóðurinn ÍSH, sem er í rekstri Júpíters rekstrarfélags hf., gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2016.

  • Tap varð af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins sem nam 607 þúsundum króna samkvæmt rekstrarreikningi.
     
  • Hrein eign sjóðsins nam 267 þúsundum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
     
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Í áritun endurskoðenda vegna könnunar kemur fram að ekkert bendi til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahagi hans 30. júní 2018 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Júpíters rekstrarfélags í síma 522-0010.


Viðhengi


Attachments

ÍSH 30. júní 2018_undirritaður
GlobeNewswire