Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.
Heildartilboð í útboðinu voru 14 talsins og námu samtals 2.240 m. kr. að nafnverði.
Eitt tilboð að fjárhæð 200 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu 5,75%. Því tilboði var ekki tekið í flokkinn.
Tíu tilboð að fjárhæð 1.780 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,54%-2,59%. Tilboðum að fjárhæð 1.680 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,58%. Heildarstærð flokksins verður 19.200 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Þrjú tilboð að fjárhæð 260 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,54%-2,56%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,56%. Heildarstærð flokksins verður 28.120 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 28. ágúst 2018. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.