VÍS mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2017 eftir lokun markaðar þann 25. október næstkomandi.
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 26. október 2017 í húsnæði félagsins, Ármúla 3, kl. 8:30.
Á fundinum mun Helgi Bjarnason forstjóri kynna uppgjör félagsins og svara spurningum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á íslensku og á ensku á heimasíðu VÍS: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestafundur
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku að honum loknum á vefslóðinni: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestafundur
Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri VÍS í netfangi fjarfestatengsl@vis.is