Íslandsbanki hf.: Útboð á víxlum 3. október


Íslandsbanki hf. verður með víxlaútboð þriðjudaginn 3. október 2017. Boðnir verða út 6 mánaða flokkurinn ISLA 18 0410 og 12 mánaða flokkurinn ISLA 18 1009.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 3. október en greiðslu- og uppgjörsdagur er 10. október 2017.

Nánari upplýsingar veita:

  • Fjárstýring - Egill Skúli Þórólfsson, egill.thorolfsson@islandsbanki.is og í síma 440 2615.
  • Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005.
GlobeNewswire