Fjármálaeftirlitið hefur í dag metið Kviku banka hf. hæfan til að eiga og fara með 100% eignarhlut í Virðingu hf. og Rekstrarfélagi Virðingar hf., sbr. 2. mgr. 42. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Með samþykki Fjármálaeftirlitsins hafa öll skilyrði fyrir kaupum Kviku á öllu hlutafé Virðingar verið uppfyllt. Stefnt er að því að sameina félögin undir nafni Kviku. Sameinað félag verður eitt það umsvifamesta í eignastýringu á Íslandi með um 235 milljarða króna í stýringu og fjölda sjóða í rekstri.
Nánari upplýsingar veita:
Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður Kviku banka hf. í síma 540 3200.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka hf. í síma 540 3200.