Veðskuldabréfsjóður ÍV er fagfjárfestasjóður í rekstri ÍV sjóða hf. Stjórn ÍV sjóða hf. samþykkti á fundi sínum 25. maí 2016 að stækka skuldabréfaflokkinn VIV 14 1 sem gefinn er út af sjóðnum um ISK. 2.002.200.000 að nafnverði. Eftir stækkun verður flokkurinn ISK 7.252.200.000 að nafnverði.
Bréfin eru seld hlutdeildarskírteinishöfum Veðskuldabréfasjóðs ÍV, í samræmi við fjárfestingarloforð.
Í kjölfar birtingar uppfærðrar útgáfulýsingar er áætlað að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland í viku 24 til 25 nk.
Íslensk verðbréf hafa umsjón með stækkun flokksins. Frekari upplýsingar um stækkunina og sjóðinn má nálgast hjá Íslenskum verðbréfum og ÍV sjóðum í síma 460-4700 eða á vefsíðu sjóðsins www.viv.is.
HUG#2017411