Framlenging fjárfestingartímabils Veðskuldabréfasjóðs ÍV um 12 mánuði
Fjárfestingaráð Veðskuldabréfasjóðs ÍV hefur samþykkt að nýta heimild í reglum sjóðsins um framlengingu fjárfestingartímabils um 12 mánuði. Fjárfestingartímabil sjóðsins verður þá samtals 3 ár og lýkur 26. febrúar 2017.
Veðskuldabréfasjóður ÍV er fagfjárfestasjóður í rekstri ÍV sjóða hf. sem fjárfestir í skuldabréfum útgefnum af lögaðilum, tryggðum með veði í tekjuberandi fasteignum. Sjóðurinn er útgefandi skuldabréfaflokksins VIV 14 1 sem skráður er á Nasdaq OMX
Nánari upplýsingar veita ÍV sjóðir og Íslensk verðbréf í síma 460-4700
www.ivsjodir.is
www.iv.is
HUG#1989417