Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.
Í 45. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 3.196.515 eigin hluti fyrir 75,1 m.kr. eins og hér segir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
| 2.11.2015 | 11:34 | 639.303 | 24,10 | 15.407.202 | 13.647.680 |
| 3.11.2015 | 09:54 | 639.303 | 23,85 | 15.247.377 | 14.286.983 |
| 4.11.2015 | 09:30 | 639.303 | 23,40 | 14.959.690 | 14.926.286 |
| 5.11.2015 | 11:59 | 639.303 | 23,15 | 14.799.864 | 15.565.589 |
| 6.11.2015 | 09:51 | 639.303 | 23,00 | 14.703.969 | 16.204.892 |
| Samtals | 3.196.515 | 75.118.103 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 16.204.892 hluti í félaginu sem samsvarar 52,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 354,4 milljónum króna. TM á nú samtals 2,2% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is