Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á tveimur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 160310 og nýjum flokki, LBANK 160510.
Heildartilboð í útboðinu námu 3.280 m.kr. og var tilboðum tekið í flokki LBANK 160310 að fjárhæð 1.480 m.kr. á 6,40% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,6732 og í flokki LBANK 160510 að fjárhæð 1.800 á 6,50% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 96,5989.
Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 28. október 2015.
Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.