Árshlutareikningur RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2014

Heildarhagnaður RARIK á fyrri hluta ársins var 1.265 milljónir króna.


Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2014 var 1.658 milljónir króna. Rekstrartekjur hækkuðu  um 11% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum um 4%. Hækkun rekstrartekna er meiri en gert var ráð fyrir í áætlunum sem stafar einkum af aukinni  raforkusölu á landsbyggðinni, ekki síst í dreifbýli, samhliða vaxandi þjónustu við ferðamenn. Regluleg starfsemi  fyrirtækisins var að öðru leyti í samræmi við áætlanir.

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 424 milljón króna á tímabilinu eða nær sama tala og á fyrri hluta ársins 2013.

Áhrif hlutdeildarfélagsins Landsnets á rekstur voru jákvæð um 277 milljónir króna.

Samkvæmt yfirliti um heildarafkomu var hagnaður á tímabilinu 1.265 milljónir króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 2.455 milljónir króna eða um 38% af veltu tímabilsins, samanborið við 35%  af veltu á sama tímabili árið áður.  Hreint veltufé frá rekstri var 2.346 milljónir króna samanborið við 1.927 milljón króna á sama tímabili árið 2013.

Heildareignir RARIK samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2014 voru 46.964 milljónir króna og heildarskuldir námu 18.866 milljónum króna. Eigið fé var 28.098 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 59,8%. Skammtímaskuldir hækka um rúma þrjá milljarða frá uppgjöri 2013, vegna uppgreiðslu skuldabréfaflokks, sem telst nú til næsta árs afborgana, en vaxtaberandi skuldir í heild lækka hins vegar um 580 milljónir.

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2014 eru góðar. Gert er ráð fyrir að afkoma fyrir fjármagnsliði á seinni hluta ársins verði í samræmi við áætlanir. Miðað við gengisþróun undanfarna mánuði og verðbólguspár næstu mánaða verður heildarafkoma fyrirtækisins því jákvæð á árinu 2014.

Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

Helstu stærðir samstæðureiknings eru sýndar í meðfylgjandi viðhengi.


Attachments

Fréttatilkynning um afkomu RARIK ohf  300614.pdf Rarik Árshlutareikningur 30.06.2014.pdf
GlobeNewswire

Recommended Reading

  • Ársreikningur Rarik fyrir árið 2025