Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs desember 2013


Íbúðalánasjóður liggur ekki með leiguhæfar eignir

Þrátt fyrir reglulegar mánaðarskýrslur Íbúðalánasjóðs, sem innihalda meðal annars nákvæma tölfræði um fullnustueignir sjóðsins, hefur því ítrekað verið haldið fram að sjóðurinn lúri á fjölda leiguhæfra eigna og sýni ekki viðleitni í að koma þeim á leigumarkað. Þessi viðvarandi rangtúlkun kann að skrifast á misskilning, hugsanlega í bland við óskhyggju um að meira sé til af nothæfu húsnæði en í raun er.

Íbúðalánasjóður ber auðvitað þá ábyrgð að tölulegar upplýsingar séu settar þannig fram að engum dyljist innihaldið og að sem flestir skilji. Því verður það svo, frá og með þessari mánaðarskýrslu, að framsetning á töflu með fullnustueignum sjóðsins tekur breytingum. Nú verður sérstakur dálkur kynntur til sögunnar, sem nefnist „Í sölu“. Upplýsingarnar í töflunni í heild verða þær sömu, einungis nákvæmari með þeim eina dálki sem bætist við. Þannig má sjá að í lok desember stóðu 243 íbúðir í eigu sjóðsins auðar, um helmingur þeirra á Suðurnesjum.

Enn og aftur ber að taka það fram að auð íbúð jafngildir ekki leiguhæfri íbúð, því skýrar reglur gilda um ástand íbúða sem leigðar eru út. Íbúðalánasjóður setur sér þau mörk að verja að hámarki 1,5 m. kr. í að gera upp íbúðir til þess að þær uppfylli reglurnar.  Því er það svo að auðar og leiguhæfar íbúðir sjóðsins eru sjaldnast nema lítið brot af heildareignum sjóðsins. 


Attachments

manadarskyrsla desember 2013.pdf
GlobeNewswire

Recommended Reading