Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 11/2011
Reykjavík, 27. október 2011
GÓÐUR SÖLUVÖXTUR
Sala - Söluvöxtur á þriðja ársfjórðungi var 12%, mælt í staðbundinni mynt. Heildarsalan nam 101 milljón Bandaríkjadala samanborið við 87 milljónir dala á þriðja ársfjórðungi 2010. Öll landsvæði og vörumarkaðir sýndu vöxt á þessum ársfjórðungi. Sala á spelkum og stuðningsvörum var sérstaklega góð og skilaði 17% söluvexti, mælt í staðbundinni mynt. Söluvöxtur í stoðtækjum var jafnframt góður eða 7%, mælt í staðbundinni mynt.
Arðsemi - Arðsemi Össurar er áfram góð og jókst hagnaður félagsins um 165% samanborið við þriðja ársfjórðung 2010. EBITDA nam 21 milljón Bandaríkjadala eða 21% af sölu. Framlegð nam 64 milljónum dala eða 63% af sölu og hagnaður nam 11 milljónum dala eða 11% af sölu.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Salan á þriðja ársfjórðungi var mjög góð og við erum ánægð með frammistöðuna, enda sýndu öll landsvæði og vörumarkaðir vöxt. Gott og stöðugt framboð á nýjum vörum er mikilvægt fyrir vöxt félagsins og þær vörur sem komu á markað á þessu ári og því síðasta áttu stóran þátt í þessari velgengni. Á ársfjórðungnum kynntum við enn eina vöruna í Bionic vörulínu félagsins, SYMBIONIC LEG, sem er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Varan sameinar eiginleika RHEO KNEE og PROPRIO FOOT og veitir einstaka virkni fyrir þá sem eru aflimaðir fyrir ofan hné. Þessi nýja viðbót í Bionic vörulínunni staðfestir forystu okkar í rafeindastýrðum stoðtækjum með gervigreind."
Helstu tíðindi á fjórðungnum:
- SYMBIONIC LEG kynntur - Í september var SYMBIONIC LEG kynntur á vörusýningunni AOPA í Bandaríkjunum. SYMBIONIC LEG sameinar þekkta virkni frá RHEO KNEE og PROPRIO FOOT í eina heildstæða lausn sem veitir einstaka virkni fyrir þá sem eru aflimaðir fyrir ofan hné. Þessi byltingarkennda vara er sú fyrsta sinnar tegundar á markaðnum.
- Framleiðsla í Mexico - Verksmiðja Össurar í Mexíkó var formlega opnuð í september. Össur hóf uppbyggingu á verksmiðjunni fyrir ári síðan og hefur nú flutt framleiðslu á nokkrum vörulínum þangað frá Bandaríkjunum. Verksmiðjan er með hágæða tækjabúnað, vel menntað starfsfólk og viðurkennda framleiðsluferla.
- Stöðugt framboð á nýjum vörum - Á fjórðungnum voru sex nýjar vörur kynntar, fjórar spelkur og stuðningsvörur og tvær stoðtækjavörur. Framboð á nýjum vörum hefur verið stöðugt á þessu ári og gott jafnvægi á milli nýrra vara og vara sem hafa verið uppfærðar.
Áætlun 2011 - Fyrir árið 2011 gera stjórnendur ráð fyrir innri söluvexti á bilinu 4-6%, mælt í staðbundinni mynt, og að EBITDA, leiðrétt fyrir einskiptistekjum og -kostnaði, verði á bilinu 20-21% af veltu fyrir árið í heild. Engar breytingar hafa orðið frá áður birtri áætlun fyrir árið 2011.
Símafundur föstudaginn 28. október kl. 10:00
Á morgun, föstudaginn 28. október 2011, verður haldinn símafundur þar sem farið verður yfir niðurstöður þriðja ársfjórðungs. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00 CET. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður hægt að fylgjast með honum á netinu á slóðinni www.ossur.com/investors
Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660
Nánari upplýsingar:
| Jón Sigurðsson, forstjóri | sími: 515-1300 |
| Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri | sími: 515-1300 |
| Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill | sími: 664-1044 |
Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna á www.ossur.com/investors