Birting fjárhagslegra upplýsinga vegna fyrirhugaðs skuldabréfaútboðs. RARIK hefur ákveðið að efna til skuldabréfaútboðs á nýjum flokki skuldabréfa, RARIK 10 1. Fjárfestum mun bjóðast að kaupa allt að 3.000 milljónir króna að nafnvirði. Landsbankinn (NBI hf.) er umsjónaraðili útboðsins og hefur sölutryggt útboðið. Í kynningarefni útboðsins sem kynnt verður fjárfestum koma fram áður óbirtar fjárhagslegar upplýsingar og til að gæta jafnræðis á meðal fjárfesta á markaði fylgir kynningarefnið þessari tilkynningu. Fjárfestum er sérstaklega bent á að kynna sér Rekstrar- og fjárfestingaráætlun ársins 2010 og áætlaða endurfjármögnunarþörf. Jafnframt kemur fram í kynningarefni útboðsins að samkvæmt óendurskoðuðu rekstraruppgjöri fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins er rekstur RARIK samstæðunnar í góðu samræmi við áætlanir félagsins fyrir árið 2010. Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Hilmar Sverrisson, Framkvæmdastjóri fjármálsviðs RARIK Sími: 528-9000 Tölvupóstur: olafur.sverrisson@rarik.is
Recommended Reading
-
Ársuppgjör Rarik 2025: Sterk afkoma og traustur rekstur Stjórn Rarik hefur samþykkt ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2025. Rekstur samstæðunnar gekk vel á árinu og var afkoma betri en áætlanir...
Read More