Össur óskar eftir afskráningu úr kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi - Áhersla á skráninguna í Kaupmannahöfn


 

Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 22/2010
Reykjavík, 15. nóvember 2010

 

  

 

Össur óskar eftir afskráningu úr kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi

Áhersla á skráninguna í Kaupmannahöfn

 

Hlutabréf Össurar hf. eru nú til viðskipta í kauphöllum NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn og á Íslandi. Stjórn Össurar ákvað í dag að óska eftir afskráningu félagsins úr kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi. Félagið mun leggja áherslu á skráninguna í Kaupmannahöfn.

 

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hf.: "Össur hefur verið skráð á íslenska hlutabréfamarkaðnum frá 1999 og hefur skráningin gegnt veigamiklu hlutverki í vexti félagsins. Í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa í viðskiptaumhverfinu og á félaginu sjálfu á undanförnum árum er eðlilegt að stíga þetta skref og leggja áherslu á hlutabréfamarkað sem getur stutt við fyrirætlanir um framtíðarvöxt félagsins. Ég vil undirstrika að þessi ákvörðun hefur aðeins áhrif á skráningu félagsins á hlutabréfamarkað. Starfsemin á Íslandi hefur verið að aukast og við eigum ekki von á breytingu þar á."

 

Össur hefur verið skráð í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn síðan í september 2009. Þar hefur félagið aðgang að alþjóðlegum fjárfestum á virtum markaði fyrir fyrirtæki á heilbrigðissviði. Um 64% af hlutabréfum félagsins eru nú til viðskipta á danska markaðnum.

 

Hluthafar þurfa ekki að grípa til neinna ráðstafana vegna þessarar óskar um afskráningu.

 

Afskráningarbeiðnin verður send án tafar til NASDAQ OMX á Íslandi. Frekari upplýsingar verða birtar þegar afstaða hefur verið tekin til beiðni félagsins.  

 

Nánari upplýsingar:  
Jón Sigurðsson, forstjóri, sími: 664 1003

Tilkynningar frá Össuri með tölvupósti:

 

Ef þú hefur áhuga á að fá sendar tilkynningar frá Össuri, vinsamlega skráður þig á heimasíðu Össurar: http://www.ossur.com/investormailings.

GlobeNewswire